Sem betur fer virðist það aðeins spurning hvenær en ekki hvort nýr og endurbættur Laugardalsvöllur lítur dagsins ljós. Völlurinn er löngu orðinn úreltur og eru viðræður farnar af stað á milli KSÍ og borgaryfirvalda um stækkun þjóðarleikvangsins.
KSÍ birti tvær myndir á Twitter-síðu sinni í dag af hugmyndum um hvernig leikvangurinn gæti litið út í framtíðinni. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, vonar að mannvirkið verði tilbúið árið 2020 og gæti Laugardalsvöllurinn þá litið svona út.
Áhugaverð hugmynd að útliti nýs Laugardalsvallar frá Bj. Snæ arkitektum.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 23, 2017
An interesting idea for a new National stadium. #nyrleikvangur pic.twitter.com/CP2tcfTaxo