Birkir velti bíl í eyðimörkinni – myndskeið

Birkir Bjarnason, nýbúinn að velta bílnum.
Birkir Bjarnason, nýbúinn að velta bílnum. Ljósmynd/Instagram/Birkir Bjarnason.

Mikið fjör hefur verið á íslensku landsliðsmönnunum í knattspyrnu en þeir eru nú í Katar í æfingaferð þar sem liðið mun einnig spila tvo vináttulandsleiki.

Í gær fengu landsliðsmennirnir frídag og skelltu þeir sér margir hverjir út í eyðimörkina þar sem þeir fengu að láta reyna á aksturshæfileika sína.

Birkir Bjarnason, leikmaður Aston Villa á Englandi, gerði sig sekan um byrjendamistök undir stýri og velti litlum torfærujeppa við mikla kátínu viðstaddra en atvikið má sjá hér að neðan á Instagram-síðu Birkis sem hafði mikinn húmor fyrir atvikinu.

<div> <div></div> </div>

<a href="https://www.instagram.com/p/BbWzKFrgqXu/" target="_blank">15 seconds in the driver seat and this happens👌🏼👏🏼🙄</a>

A post shared by Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason) on Nov 11, 2017 at 5:31am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert