Ein breyting á U21 árs liðinu

Samúel Kári Friðjónsson (6) kemur inn í stað Viktors Karls …
Samúel Kári Friðjónsson (6) kemur inn í stað Viktors Karls Einarssonar (8). mbl.is/Golli

Eyjólfur Sverrisson gerir eina breytingu á byrjunarliði U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu sem mætir Eistlandi í undankeppni heimsmeistaramótsins ytra í dag.

Ísland tapaði 1:0 fyrir Spáni á fimmtudag og síðan þá kemur Samúel Kári Friðjónsson inn í liðið í stað Viktors Karls Einarssonar. Samúel Kári var í leikbanni gegn Spánverjum en endurheimtir stöðu sína. Ásgeir Sigurgeirsson situr af sér síðari leikinn af tveggja leikja banni.

Byrjunarliðið má sjá hér að neðan.

Sindri Kristinn Ólafsson (m), Alfons Sampsted, Felix Örn Friðriksson, Hans Viktor Guðmundsson, Axel Andrésson, Mikael Anderson, Júlíus Magnússon, Samúel Kári Friðjónsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Albert Guðmundsson (fyrirliði), Jón Dagur Þorsteinsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert