Bríet og Ívar nýir FIFA-dómarar

Bríet Bragadóttir er nýr FIFA-dómari.
Bríet Bragadóttir er nýr FIFA-dómari. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir íslenskir knattspyrnudómarar hafa bæst á lista yfir alþjóðlega dómara og koma þar með inn sem nýir FIFA-dómarar.

Þetta eru þau Bríet Bragadóttir og Ívar Orri Kristjánsson. Gunnar Jarl Jónsson fellur út af listanum en hann ákvað eftir leiktíðina í ár að leggja flautuna á hilluna.

Íslensku FIFA-dómararnir fyrir árið 2018 eru þessir:

FIFA-dómarar 

Bríet Bragadóttir

Ívar Orri Kristjánsson 

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson 

Þorvaldur Árnason 

Þóroddur Hjaltalín 

FIFA-aðstoðardómarar 

Andri Vigfússon 

Birkir Sigurðarson 

Bryngeir Valdimarsson 

Frosti Viðar Gunnarsson 

Gylfi Már Sigurðsson 

Jóhann Gunnar Guðmundsson 

Oddur Helgi Guðmundsson 

Rúna Kristín Stefánsdóttir

Futsal-dómari 

Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert