Fyrst Messi og síðan Heimir

Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Argentínska sjónvarpsstöðin TYC sports mætti til Vestmannaeyja á mánudaginn var og hitti Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara í fótbolta. Argentína og Ísland eru saman í riðli á HM í Rússlandi í sumar. 

Í síðustu viku fór sama sjónvarpsstöð til Barcelona og spjallaði við Lionel Messi, það er því skammt stórra högga á milli hjá TYC. 

Samkvæmt frétt Eyjafrétta mætti Heimir sjálfur upp á flugvöll til að sækja sjónvarpsmennina og bauð þeim heim til sín til að taka viðtalið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert