Síðustu leikirnir fyrir HM á Íslandi

Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Síðustu tveir vináttulandsleikirnir sem íslenska karlalandsliðið spilar fyrir lokakeppni HM í Rússlandi verða á Íslandi í júní. 

Ekki liggur fyrir hverjir andstæðingarnir verða en Heimir Hallgrímsson lýsti því yfir á blaðamannafundi í KSÍ sem nú stendur yfir að síðustu tveir leikir liðsins fyrir HM verði á Íslandi. 

Landsliðsmennirnir hafi óskað eftir því að dvelja sem mest á Íslandi fyrir HM en einnig vilji KSÍ gefa Íslendingum færi á að sjá landsliðið fyrir HM. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert