Jóhann Berg frá í 3-4 vikur

Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með gegn Moldóvu og Albaníu.
Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með gegn Moldóvu og Albaníu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson verður frá næstu 3-4 vikurnar vegna meiðsla í kálfa. Jóhann er ekki í 23 manna landsliðshópi sem mætir Moldóvu og Albaníu í næsta mánuði vegna meiðslanna. 

Jóhann fór meiddur af velli í leik Burnley gegn Wolves. Erik Hamrén landsliðsþjálfari segir meiðslin ekki mjög alvarleg, en að Jóhann verði frá í allt að mánuð. 

„Jóhann meiddist á kálfa og verður frá í 3-4 vikur. Hann verður ekki klár í leikina við Moldóvu eða Albaníu," sagði sænski þjálfarinn í samtali við mbl.is í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert