Sjö gætu leikið sinn fyrsta A-landsleik

Kári Árnason er í hópnum.
Kári Árnason er í hópnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjö leikmenn gætu leikið sinn fyrsta A-landsleik í fótbolta er íslenska karlalandsliðið fer til Bandaríkjanna í janúar og mætir El Salvador og Kanada í vináttuleikjum, en landsliðshópurinn var opinberaður í dag. 

Patrik Sigurður Gunnarsson, Elías Rafn Ólafsson, Daníel Leo Grétarsson, Ari Leifsson, Óskar Sverrisson, Alfons Sampsted og Höskuldur Gunnlaugsson eru í hópnum, en þeir hafa ekki spilað með A-liðinu áður. 

Óskar er 27 ára leikmaður Häcken í Svíþjóð, en hann er fæddur í Svíþjóð og hefur aldrei leikið með íslensku landsliði áður. Hann lék með Keflavík í einum æfingaleik árið 2014. 

Nokkrir reynslumiklir landsliðsmenn eru í hópnum. Hannes Þór Halldórsson, Kári Árnason, Birkir Már Sævarsson, Emil Hallfreðsson og Kolbeinn Sigþórsson eru meðal annars í hópnum. 

Markverðir
Elías Rafn Ólafsson (2000) - FC Midtjylland (3 U21 leikir)
Patrik Sigurður Gunnarsson (2000) - Brentford (7 U21 leikir)
Hannes Þór Halldórsson (1984) - Valur (67 A leikir)

Varnarmenn 
Kári Árnason (1982) - Víkingur (81 A-leikur, 6 mörk) 
Hólmar Örn Eyjólfsson (1990) - Levski Sofia (12 A leikir, 1 mark)
Daníel Leó Grétarsson (1995) - Aalesund (6 U21 leikir, 1 mark) 
Birkir Már Sævarsson (1984) - Valur (90 A leikir, 1 mark) 
Davíð Kristján Ólafsson (1995) - Aalesund (1 A leikur)
Ari Leifsson (1998) - Fylkir (14 U21 leikir, 1 mark) 
Oskar Sverrisson (1992) - BK Häcken
Alfons Sampsted (1998) - Norrköping (26 U21 leikur, 1 mark)

Miðjumenn 
Samúel Kári Friðjónsson (1996) - Viking Stavanger (8 A landsleikir)
Jón Dagur Þorsteinsson (1998) - AGF (3 A leikir, 1 mark) 
Mikael Neville Anderson (1998) - FC Midtjylland (3 A leikir) 
Aron Elís Þrándarson (1994) - OB (3 A leikir)
Alex Þór Hauksson (1999) - Stjarnan (1 A leikur) 
Emil Hallfreðsson (1984) - (71 A leikur, 1 mark)
Höskuldur Gunnlaugsson (1994) - Breiðablik (7 U21 leikir, 2 mörk)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (1996) - ÍA (3 A leikir, 1 mark)

Sóknarmenn 
Kristján Flóki Finnbogason (1995)- KR (4 A leikir, 1 mark)
Óttar Magnús Karlsson (1997) - Víkingur (7 A leikir, 2 mörk)
Kjartan Henry Finnbogason (1986) - Vejle 11 A leikir, 2 mörk) 
Kolbeinn Sigþórsson (1990) - AIK (56 A leikir, 26 mörk)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert