Sautján partísmit stöðvuðu fótboltann

Logi Ólafsson, þjálfari FH.
Logi Ólafsson, þjálfari FH. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er bara einn leikur, það gæti aukið möguleikann á að komast áfram. Það er oft erfitt í tveimur leikjum en svo er hægt að ramba á sigur í einum leik,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari FH, um dráttinn í Evrópudeildinni en Hafnfirðingar mæta slóvakís­ka liðinu Dunaj­ská Streda á heimavelli 27. ágúst.

FH var eina íslenska liðið í efri styrkleikaflokki fyrir dráttinn og gat einnig mætt finnsku liðunum Ilves og Honka. Aðeins er leikinn einn leikur í hverri umferð í keppninni í ár. Sennilega mæta Hafnfirðingar erfiðasta liðinu sem þeir gátu fengið en fengu þó heimaleik.

„Sennilega eru finnsku liðin tvö slakari andstæðingur en það er líka oft gott að hafa mótherjann betri þannig að menn komi á tánum inn í svona verkefni.“

FH-ingar bíða þó í von og óvon um hvort þeir fái að spila leikinn í Kaplakrika. Ekki má spila fótboltaleiki á Íslandi núna vegna hertra aðgerða yfirvalda til að sporna við kórónuveirunni og þá geta lið ekki æft með hefðbundnum hætti vegna tveggja metra reglunnar.

„Mér skilst að það hafi verið góð von um daginn en þá komu 17 partísmit frá Vestmannaeyjum og miðborg Reykjavíkur sem stoppuðu okkur af,“ sagði Logi en beiðni KSÍ um undanþágu frá reglunum til að lið gætu bæði æft og keppt var hafnað í kjölfar þess að sautján smit greindust innanlands í síðustu viku.

Logi var að ræða við Guðmund Hilmarsson í viðtali sem FH-ingar birtu á samfélagsmiðlum sínum og má horfa á það í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Við heyrðum í Loga Ólafssyni eftir dráttinn í 1.umferð undankeppni Evrópudeildarinnar þar sem andstæðingurinn verður Dunajská Streda frá Slóvakíu. Leikurinn á að fara fram á Kaplakrikavelli 27. ágúst. Við fengum líka viðbrögð frá Loga hvernig gangi að æfa og undirbúa liðið á þessum tíma þar sem fótboltinn var settur á ís og óvissa ríkir hvenær Íslandsmótið fer af stað á nýjan leik.

Posted by FHingar on Monday, August 10, 2020
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert