Babel úr leik hjá Hollendingum

Ryan Babel fagnar marki með Liverpool.
Ryan Babel fagnar marki með Liverpool. Reuters

Framherjinn Ryan Babel verður ekki með hollenska landsliðinu á Evrópumeistaramótinu í Sviss og Austurríki vegna meiðsla. Babel, sem leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Liverpool meiddist á ökkla á æfingu liðsins í gær og eru meiðslin það´alvarleg að hann verður ekki búinn að ná sér áður en keppni hefst þann 7. júní.  

Talsmenn hollenska landsliðsins sögðu í dag að líklega væru liðbönd rifin eða slitin í ökkla Babel en ekki er búið að ákveða  hvaða leikmaður verður kallaður inn í liðið í hans stað.  Hollendingar eru í C-riðli með Frakklandi, Ítalíu og Rúmeníu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert