Lippi hrósar Ítölum

Marcelo Lippi hefur ekki stýrt neinu liði síðan hann gerði Ítalíu að heimsmeisturum 2006. stækka

Marcelo Lippi hefur ekki stýrt neinu liði síðan hann gerði Ítalíu að heimsmeisturum 2006. Reuters

Ítalskir fjölmiðlamenn höfðu mikinn áhuga á að fá viðbrögð frá Marcelo Lippi eftir fyrstu tvo leiki Ítala á EM. Lippi, sem gerði Ítali að heimsmeisturum fyrir tveimur árum kaus að gefa engin viðtöl. Hann rauf þó þögn sína eftir leik Ítalíu og Frakklands.

„Ég verð að hrósa landsliðinu þar sem það er alls ekki auðvelt að ætla að vinna leik eftir svona brösuglega byrjun á Evrópumótinu. Liðsmennirnir sýndu hins vegar úr hverju þeir eru gerðir og stóðu sig vel í þessum leik. Ég tek ofan hattinn fyrir slíkri frammistöðu,“ sagði Lippi sem var orðaður við sitt gamla starf hjá landsliðinu eftir 3:0 tapið gegn Hollendingum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is