Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 18.6.2008
| 15:26
| Uppfært
16:24
Schweinsteiger vill bæta upp fyrir bannið
Þýski knattspyrnumaðurinn Bastian Schweinsteiger vill bæta upp fyrir rauða spjaldið sem hann hlaut gegn Króatíu á dögunum. Af þeim sökum var Schweinsteigier fjarverandi í síðasta leik Þýskalands, gegn Austurríki.
„Ég gerði mistök gegn Króatíu og ég veit það vel. Ég mun samt reyna að leika eins og ég geri best og vonandi að ég geti gert einhvern gæfumun í leiknum við Portúgal,“sagði Schweinsteiger. Þýskaland og Portúgal mætast í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar á morgun.
„Ég held að ef við vinnum þennan leik þá hafi ég gert minn hlut til að hjálpa liðinu áfram. Við sýndum hvers við erum megnugir í leiknum við Pólland og við vitum að við eigum meira inni.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






