Dóttir Boulahrouz látin

Khalid Boulahrouz. stækka

Khalid Boulahrouz. Reuters

Eftirvænting Hollendinga vegna leiks þeirra við Rússa í 8-liða úrslitum EM í knattspyrnu á laugardag er mikil. Leikmannahópur Hollands er þó allur harmi sleginn eftir að bakvörður þeirra, Khalid Boulahrouz yfirgaf æfingu í gær vegna harmleiks í fjölskyldu hans. Kona hans Sabia fæddi þeim hjónum dóttur, töluvert fyrir tímann sem lést skömmu síðar. Hollenski hópurinn sem stendur þétt saman tók þetta mjög nærri sér.

Talsmaður hollenska knattspyrnusambandsins gaf þó út að Boulahrouz myndi snúa aftur og vera með liðinu í leiknum gegn Rússlandi á laugardag. Boulahrouz hefur verið í byrjunarliði Hollands í öllum þeirra leikjum það sem af er EM.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is