Er 22. júní óhappadagur ?
Spánn mætir Ítalíu í 8-liða úrslitum EM í knattspyrnu á sunnudag, það er 22. júní. Sagan er ekki alveg með landsliðinu þann dag, því Spánverjar hafa þrívegis þurft að þola mjög sársaukafull töp í vítaspyrnukeppnum í 8-liða úrslitum á stórmótum þennan dag.
Spánn tapaði fyrir Belgíu í vítaspyrnukeppni á heimsmeistarakeppninni í Mexíkó 22. júní 1986. Þeir biðu lægri hlut fyrir Englendingum í vítaspyrnukeppni á Evrópumótinu 22. júní 1996 og einnig fyrir Suður-Kóreu 22. jún í 2002 enn einu sinni í vítaspyrnukeppni og enn einu sinni í 8-liða úrslitum.
Reyndar hefur gæfan ekki verið með Ítölum heldur 22. júní. Þann dag fyrir fjórum árum komust þeir ekki upp úr riðli sínum á EM þrátt fyrir að hafa fimm stig. Svíar og Danir fóru þá áfram. Á EM 1988 tapaði Ítalía í undanúrslitum fyrir Sovétríkjunum 2:0, þann 22. júní.
Spánn hefur aldrei unnið Ítalíu á stórmóti í knattspyrnu. Spurningin er því hvort Spánverjar geta bæði sigrast á óhöppunum sem hafa fylgt þeim 22. júní og einnig á Ítölum.






