Rússar í fyrsta sinn upp úr riðlakeppni

Sigur Rússlands á Svíþjóð í gær var sögulegur fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn sem knattspyrnulandslið þjóðarinnar kemst upp úr riðlakeppni á stórmóti. Frá því farið var að spila undir merkjum Rússlands 1992 hefur liðinu aldrei tekist að komast í gegnum riðlakeppni á þeim stórmótum sem liðið hefur verið meðal þátttakenda fyrr en núna.

Það má kannski þakka þjálfaranum Guus Hiddink. Sá hollenski virðist vera gæddur einhverjum töfrum því hann hefur náð frábærum árangri með þau landslið sem hann hefur stýrt. Hollandi stýrði hann í 8-liða úrslit EM 1996 og í undanúrslit HM 1998, þar sem liðið tapaði fyrir Brasilíu í vítaspyrnukeppni.

Á HM 2002 var Hiddink við stjórnvölinn hjá Suður-Kóreu þar sem liðið komst alla leið í undanúrslit keppninnar. Því næst lá leiðin til Ástralíu og kom Hiddink liðinu inn á HM 2006 og í 16-liða úrslit. Þar tapaði liðið naumlega fyrir Ítalíu með nokkuð umdeildum hætti að segja má, þegar Ítalir fengu dæmda vafasama vítaspyrnu á lokaandartökum leiksins.

Það verður þó fróðlegt að sjá hvort Rússarnir eigi eitthvað í Hollendingana því þau lið mætast í 8-liða úrslitum EM 2008 á laugardag. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is