Minnir mig á sjálfan mig

Carlo Ancelotti borubrattur stækka

Carlo Ancelotti borubrattur Reuters

„Ég tel að Alberto Aguilani sé klárlega reiðubúinn að taka stöðu Andrea Pirlo og Alberto satt best að segja minnir hann mig á sjálfan mig þegar ég spilaði nema ég var öflugri á hans aldri.“ segir Carlo Ancelotti um hugsanlegan arftaka Pirlo á miðju Ítala gegn Spáni á sunnudaginn kemur.

Hinn lítillláti Ancelotti, þjálfari AC Milan, er ekki í vafa að Ítalía sigrar Spán í fjórðungsúrslitum á sunnudaginn þó hann gefi reyndar þeim spænsku plús í kladdann fyrir að vera með „alvöru“ lið í þetta skiptið.

„Spánn hefur alltaf brotnað þegar mest brýtur á í stórkeppnum. Það gerist ekki nú tel ég en ítalska liðið er engu að síður sterkara og við höfum þetta af.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is