Ramos og Aragones í rifrildi

Ramos átti sitthvað vantalað við Aragones á æfingu í dag. stækka

Ramos átti sitthvað vantalað við Aragones á æfingu í dag. Reuters

Spænski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Sergio Ramos, átti í orðaskaki við þjálfara sinn Luis Aragones á æfingu spænska liðsins í dag, að því er vefútgáfa spænska blaðsins Marca greinir frá. Talið er að rifrildið tengist gagnrýni Aragones á leikmanninn á fréttamannafundi í gær.

Rifrildið endaði ekki fyrr en liðsfélagi Ramos, Carlos Marchena, dró hann í burtu til að róa hann niður. 

„Hann er frábær persóna en stundum gerir hann hluti sem hann ætti ekki að gera utan vallar,“ sagði Aragones á fréttamannafundinum, og eitthvað virðast þessi ummæli hafa farið fyrir brjóstið á bakverðinum snjalla.

„Við töluðum um mikilvæga hluti varðandi liðið og hann tjáði sínar skoðanir á ákveðnum málum,“ sagði Aragones aðspurður um samtal sitt við Ramos, en vildi ekki tjá sig frekar um málið. Framherjinn Fernando Torres varð vitni að samtalinu en neitaði að sama skapi að tjá sig um efni þess.

„Þeir voru bara að tala um tónlist,“ sagði Torres í gamansömum tón.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is