Vonandi gerist ég föðurlandssvikari
„Ég vonast til að svíkja ættjörðina á morgun,“ sagði hollenski þjálfarinn Guus Hiddink í léttum tón við fréttamenn í dag en lærisveinar Hiddink í rússneska landsliðinu mæta Hollandi í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu annað kvöld.
„Vonandi verð ég bara föðurlandssvikari ársins,“ hélt Hiddink áfram en hans menn hafa heldur betur bitið frá sér á mótinu í ár eftir að hafa tapað 4:1 fyrir Spáni í fyrsta leik. En þó Rússland hafi náð góðum árangri nú þegar ætlar Hiddink ætlar ekki að láta staðar numið.
„Við ætlum ennþá lengra. Ég veit ekki hvernig við eigum að vinna þá, því þetta er frábært lið, en öll lið hafa sínar veiku hliðar. Hollendingarnir eru með mikið meiri reynslu og það þarf bara að líta á nöfn leikmannanna og félögin sem þeir spila með til að sjá það. Ég er skíthræddur, en þá á maður líka að grípa til vopna,“ sagði Hiddink.
Rússneska liðið lenti í 2. sæti D-riðils. Það tapaði eins og áður segir fyrir Spáni 4:1 í fyrsta leik, en vann í kjölfarið Grikki og svo Svía í úrslitaleik um 2. sætið.






