Hiddink: Næstum því kraftaverk
„Ég vil helst ekki vera stóryrtur en þetta var næstum því kraftaverk," sagði hollenski þjálfarinn Guus Hiddink eftir að hafa stýrt Rússum til sigurs á löndum sínum, Hollendingum, 3:1, í átta liða úrslitunum á EM í knattspyrnu í kvöld.
„Ég er svo stoltur af þessum strákum. Við yfirspiluðum Hollendinga á öllum sviðum, líkamsstyrk, tækni og leikskipulagi, og þetta er gríðarlega stór áfangi. Það er með ólíkindum hve fljótir rússnesku leikmennirnir voru að grípa það sem fyrir þá var lagt og bregðast við því," sagði Hiddink við fréttamenn.
„Hollenska liðið ógnaði okkur bara í uppstilltum atriðum og það var áfall að við skyldum fá á okkur jöfnunarmark undir lok venjulegs leiktíma, en afrekið að vinna leikinn eftir það var enn meira fyrir vikið. Fyrir framlenginguna sagði ég leikmönnunum að sækja og reyna að skora því Hollendingarnir væru jafn þreyttir og við. Ég sagði þeim að þeir yrðu líka að sýna sinn andlega styrk, og þeir brugðust frábærlega við því," sagði Hiddink, sem enn og aftur er kominn með landslið í undanúrslit á stórmóti.






