Enn ein rósin í hnappagat Hiddink
Eftir Sindra Sverrisson, sindris@mbl.is
Guus Hiddink sannaði enn á ný hversu magnaður knattspyrnustjóri hann er þegar að lærisveinar hans í rússneska landsliðinu sigruðu Hollendinga 3:1 í framlengdum leik í 8 liða úrslitum Evrópumótsins á laugardag . Roman Pavlyuchenko kom Rússum yfir í seinni hálfleik en Ruud van Nistelrooy jafnaði á 86. mínútu og því þurfti að framlengja. Rússar skoruðu svo tvö mörk í framlengingu og unnu verðskuldaðan sigur.
Þetta er enn ein rósin í hnappagat Hiddink sem hefur náð frábærum árangri með þau fjögur landslið sem hann hefur þjálfað. Hann stýrði hollenska landsliðinu í 8 liða úrslit á EM '96 og undanúrslit á HM '98, suður-kóreska landsliðinu í undanúrslit á HM '02 og ástralska landsliðinu í 8 liða úrslit á HM '06. Þessi árangur Suður-Kóreu og Ástralíu er sá langbesti í knattspyrnusögu þjóðanna og hið sama má kannski segja um Rússland þó gömlu Sovétríkin hafi leikið stórt hlutverk á knattspyrnusviðinu.






