Frings getur leikið gegn Tyrkjum

Torsten Frings á æfingu í dag. stækka

Torsten Frings á æfingu í dag. Reuters

Þýski miðvallarleikmaðurinn Torsten Frings verður að öllum líkindum í leikmannahópi Þýskalands þegar það mætir Tyrklandi á miðvikudagskvöld í undanúrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa brotið rifbein í lokaleik riðlakeppninnar gegn Austurríki.

Rifbeinsbrotið kom í veg fyrir að hann gæti spilað gegn Portúgal í 8-liða úrslitunum en Joachim Löw, þjálfari Þýskalands, segir að Frings verði í það minnsta á varamannabekknum á miðvikudaginn.

„Allir mínir 23 leikmenn æfðu í dag og eru klárir í slaginn. Torsten gat beitt sér að fullu en var þó með hlífðarumbúðir. Hann finnur fyrir óþægilegum sársauka en mun geta spilað,“ sagði Löw.

„Frings er mikilvægur leikmaður fyrir okkur og gæti verið í byrjunarliði, en stundum er sagt að maður eigi aldrei að breyta sigurliði. Ég er ekki ennþá búinn að ákveða byrjunarliðið,“ bætti þýski þjálfarinn við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is