Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 24.6.2008
| 9:20
Hickersberger hættur með Austurríki
Josef Hickersberger, landsliðsþjálfari Austurríkis í knattspyrnu, sagði starfi sínu lausu í gær. Lið Austurríkis fékk eitt stig í Evrópukeppninni á sínum heimavelli, sem var reyndar betri árangur en flestir höfðu spáð því.
Hickersberger átti að stýra liðinu til næstu áramóta en Austurríki vann aðeins fimm af 27 leikjum sínum undir hans stjórn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






