Aragonés til Fenerbache eftir EM

Aragonés er hvergi nærri hættur þrátt fyrir háan aldur. stækka

Aragonés er hvergi nærri hættur þrátt fyrir háan aldur. Reuters

Spænski landsliðsþjálfarinn Luis Aragonés verður næsti knattspyrnustjóri tyrkneska félagsins Fenerbache, að því er fullyrt er á heimasíðu þess í dag. Tilkynning Tyrkjanna kemur aðeins sólarhring áður en Spánverjar mæta Rússum í undanúrslitum Evrópumótsins.

Aragonés, sem stýrir að sjálfsögðu spænska landsliðinu út Evrópumótið, tekur við af Brasilíumanninum Zico sem verið hefur þjálfað Fenerbache síðastliðin tvö ár og náð mjög góðum árangri, en liðið varð tyrkneskur meistari í fyrra og komst í vor í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Aragonés, sem er 69 ára, hefur þjálfað Spán frá árinu 2004 og hefur einnig þjálfað átta félagslið á Spáni frá því hann hóf þjálfaraferilinn með Atlético Madrid árið 1974.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is