Arshavin vill til Barcelona
Hinn rússneski Andrei Arshavin hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn á Evrópumótinu í knattspyrnu nú í sumar. Hann segir sína heitustu ósk vera þá að ganga til liðs við Barcelona þegar EM lýkur. Arshavin er 27 ára framliggjandi miðjumaður sem í dag leikur með Zenit St. Petersburg. Hann hefur að undanförnu verið orðaður við Barcelona.
„Barcelona er liðið mitt og það hef ég stutt allt mitt líf. Aldrei hefði ég samt trúað því að einhvern tímann ætti sá möguleiki eftir að vera fyrir hendi að spila fyrir félagið. Ég vona svo sannarlega að þetta gangi allt saman eftir. Á þessari stundu get ég samt ekki sagt neitt meira enda er ekkert í þessari veröld öruggt. Ég vona bara það besta. Draumur minn myndi samt rætast ef ég yrði leikmaður Barcelona.“






