Þúsundir Spánverja lofa krúnurakstri
Spænska landsliðið í knattspyrnu er aðeins hársbreidd, ef svo má segja, frá því að tryggja sér sinn annan Evrópumeistaratitil í sögu liðsins en það leikur gegn Rússum annað kvöld í undanúrslitaleik.
Mikil eftirvænting ríkir á Spáni og nú hafa rúmlega 10.000 stuðningsmenn skrifað undir samning um að krúnuraka sig ef liðið stendur uppi sem Evrópumeistari á sunnudaginn.
Það er spænska íþróttadagblaðið Marca sem stendur fyrir þessu uppátæki. Á heimasíðu blaðsins er hægt að skrifa undir eftirfarandi yfirlýsingu:
„Ég, einlægur stuðningsmaður allt mitt líf, lofa því hér með, frammi fyrir Marca.com, stuðningsmönnum þjóðarinnar og liðinu sjálfu, að raka hvert eitt og einasta hár af höfði mínu ef landsliðið vinnur EM 2008.“
Marca hyggst svo gefa 20 myndavélar til þeirra sem verða fyrstir til að senda inn myndir af krúnurökuðum hausum sínum eftir úrslitaleikinn, verði Spánn Evrópumeistari.
Í dag höfðu rúmlega 10.500 stuðningsmenn skrifað undir samninginn.






