Brottrekstur Donadonis staðfestur

Donadoni þarf að finna sér nýja vinnu. stækka

Donadoni þarf að finna sér nýja vinnu. Reuters

Ítalska knattspyrnusambandið staðfesti endanlega í dag að landsliðsþjálfarinn Roberto Donadoni hefði verið látinn taka pokann sinn. Donadoni var með samning til ársins 2010 en báðir aðilar höfðu nokkra daga til að rifta þeim samningi að loknu Evrópumótinu, þar sem Ítalir féllu úr leik í 8-liða úrslitum.

Donadoni tók við ítalska liðinu skömmu eftir að það varð heimsmeistari sumarið 2006. Hann hefur áður þjálfað þrjú félagslið í heimalandinu, Lecco, Livorno og Genoa.

Donadoni, sem er 44 ára gamall, gerði garðinn frægan sem leikmaður með A.C. Milan, þar sem hann lék yfirleitt framarlega á miðjunni, fyrir aftan Marco van Basten landsliðsþjálfara Hollendinga.

Marcello Lippi hefur helst verið nefndur til sögunnar sem arftaki Donadoni, en Lippi gerði Ítali einmitt að heimsmeisturum 2006 og hefur ekki stýrt liði síðan þá. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is