Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 26.6.2008
| 17:01
Lippi tekur aftur við Ítalíu
Marcelo Lippi mun taka aftur við ítalska landsliðinu í knattspyrnu eftir tveggja ára hlé. Þetta var tilkynnt aðeins nokkrum augnablikum eftir að Roberto Donadoni var rekinn sem landsliðsþjálfari.
Í yfirlýsingu sem Giancarlo Abete, forseti ítalska knattspyrnusambandsins birti á vefsíðu sambandsins í dag segir: „Marcelo Lippi mun snúa aftur sem landsliðsþjálfari Ítalíu. Hann mun taka við af Roberto Donadoni.“
Lippi sem er 60 ára hefur ekki stýrt neinu knattspyrnuliði síðan hann gerði Ítalíu að heimsmeisturum árið 2006. Hann verður formlega kynntur sem nýr landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í Róm þann 1. júlí.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






