Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 26.6.2008
| 16:38
Rustu hættur með landsliðinu
Tyrkneski markvörðurinn Rustu Recber hefur tilkynnt að hann sé hættur með landsliði sínu. Þetta gaf hann út að loknu 3:2 tapi Tyrklands gegn Þýskalandi á EM í gær.
„Ég hef þjónað landi mínu með stolti og gleði síðustu 14 árin. Ég er stoltur af liðsfélögum mínum. Allir Tyrkir ættu að fylkjast bakvið landsliðið vegna þess að það hefur náð frábærum árangri,“ sagði Rustu.
Rustu sem er 35 ára gamall lék 118 landsleiki fyrir þjóð sína. Hann var aðalmarkvörður Tyrklands þegar liðið hafnaði í 3. sæti á HM 2002. Á þessu Evrópumóti var Rustu ekki aðalmarkvörður en þar sem Volkan Demirel hlaut tveggja leikja bann eftir leik Tyrklands og Tékklands lék Rustu í markinu í 8-liða og undanúrslitunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






