David Villa missir af úrslitaleiknum

David Villa röltir vonsvikinn af velli í leiknum við Rússa í gærkvöld. stækka

David Villa röltir vonsvikinn af velli í leiknum við Rússa í gærkvöld. Reuters

Luis Aragones, þjálfari Spánar, sagði eftir leik liðsins í gær að ljóst væri að David Villa yrði ekki með liðinu í úrslitaleik EM gegn Þýskalandi á sunnudag. Villa þurfti að fara meiddur af leikvelli á 34. mínútu gegn Rússum eftir að hafa tognað.

Meiðslin eru ekki talin alvarleg en getur hann þó ekki leikið í úrslitunum gegn Þýskalandi. Villa gæti þó ennþá orðið markahæsti maður Evrópumótsins því ennþá hefur enginn skorað fleiri mörk en hann það sem af er mótinu.

Villa hefur skorað fjögur mörk. Lukas Podolski kemur honum næstur af þeim sem leika í úrslitaleiknum. Podolski hefur gert þrjú mörk. Þá hafa Michael Ballack, Bastian Schweinsteiger, Miroslav Klose hjá Þýsklandi og Daniel Güiza hjá Spáni allir skorað tvö mörk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is