Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 27.6.2008
| 18:04
Terim verður áfram með Tyrkland
Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að hinn eitilharði Fatih Terim muni verða í stóli landsliðsþjálfara að minnsta kosti þangað til HM 2010 ljúki.
Terim sem náði frábærum árangri með lið Tyrklands á þessu Evrópumóti hafði áður gefið það í skyn að hann ætlaði að hætta með liðið að loknu EM. Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur nú tekið af allan vafa og Terim gert nýjan samning. Terim tók við landsliðinu 2005 en hafði áður þjálfað liðið á árunum 1993-1996. Hann hefur einnig þjálfað Galatasaray tvívegis og ítölsku liðin AC Milan og Fiorentina.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






