Arconada var heiðursgestur

Santi Cazorla fagnar sigri Spánverja á EM. stækka

Santi Cazorla fagnar sigri Spánverja á EM. Reuters

Úrslitaleikurinn í gær var sá fyrsti sem Spánverjar leika síðan þeir spiluðu við Frakkland á EM 1984. Þar voru það Frakkar sem urðu hlutskarpari og unnu 2:0. Fyrra mark leiksins skoraði Michael Platini, sem er núverandi forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.

Seinna markið gerði Bruno Bellone. Markið sem Platini skoraði þótti afar vandræðalegt fyrir markvörð Spánar, Luis Arconada, sem gerði klaufaleg mistök og færði Platini markið nánast að gjöf. Í kjölfarið var oft talað um það í Frakklandi að „skora Arconada-mörk“ ef markvörður gerði klaufaleg mistök.

Á úrslitaleiknum í gær þótti skemmtilegt að Luis Arconada og Michael Platini sátu hlið við hlið í stúkunni á leiknum. Hafði Platini ákveðið að vera flottur á því og bauð Arconada sérstaklega á leikinn. Nú gat sá síðarnefndi glaðst. Það hefur hins vegar verið nokkuð sérstakt fyrir Platini að afhenda Spánverjum loksins bikarinn sem hann hirti af þeim fyrir 24 árum og Spánverjar hafa beðið eftir allan þennan tíma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta 2008 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 5. júlí

Fimmtudaginn 3. júlí

Miðvikudaginn 2. júlí

Mánudaginn 30. júní

Sunnudaginn 29. júní

Laugardaginn 28. júní

Föstudaginn 27. júní

Fimmtudaginn 26. júní

Miðvikudaginn 25. júní

Þriðjudaginn 24. júní

Mánudaginn 23. júní

Sunnudaginn 22. júní

Laugardaginn 21. júní

Föstudaginn 20. júní

Fimmtudaginn 19. júní

Miðvikudaginn 18. júní


finnur.is