Hernandez besti leikmaður EM

Xavi Hernandez stækka

Xavi Hernandez ALBERT GEA

Spænski miðjumaðurinn Xavi Hernandez hefur verið valinn besti leikmaðurinn á nýafstöðnu Evrópumeistaramóti í knattspyrnu. 

Hernandez, sem er 28 ára, lék í fimm af sex leikjum Spánar og skoraði í undanúrslitaleiknum gegn Rússlandi.

Að valinu stóðu níu þrautreyndir þjálfarar auk þess sem horft var til kosninga sem fram fóru á netinu. 

Hernandez leikur fyrir Barcelona og hefur spilað yfir 60 landsleiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara
    Sveinn Teitur Svanþórsson xavi
Loka

finnur.is