Níu Spánverjar í úrvalsliði EM

Iker Casillas er einn af markvörðum úrfalsliðsins. stækka

Iker Casillas er einn af markvörðum úrfalsliðsins. Reuters

Spánverjar eiga níu leikmenn í 23 manna úrvalsliði Evrópukeppninnar í knattspyrnu sem lauk um helgina. Það er tækninefnd UEFA sem velur liðið.

Markverðir eru Gianluigi Buffon (Ítalíu), Iker Casillas (Spáni) og Edwin van der Sar (Hollandi).

Varnarmenn: Bosingwa (Portúgal), Philipp Lahm (Þýskalandi), Carlos Marchena (Spáni), Pepe (Portúgal), Carles Puyol (Spáni), Yuri Zhirkov (Rússlandi).

Miðjumenn: Hamit Altıntop (Tyrklandi), Luka Modrić (Króatíu), Marcos Senna (Spáni), Xavi Hernández (Spáni), Konstantin Zyryanov (Rússlandi), Michael Ballack (Þýskalandi), Cesc Fàbregas (Spáni), Andrés Iniesta (Spáni), Lukas Podolski (Þýskalandi), Wesley Sneijder (Hollandi).

Framherjar: Andrei Arshavin (Rússlandi), Roman Pavlyuchenko (Rússlandi), Fernando Torres (Spáni), David Villa (Spáni).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is