Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 2.7.2008
| 16:10
Allir stóðust lyfjapróf á EM
Iker Casillas lyftir Evrópubikarnum á loft. Enginn leikmaður á Evrópumótinu féll á lyfjaprófi. Reuters
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA gaf út í dag að niðurstöður úr öllum lyfjaprófum á EM hefði reynst neikvæðar. Alls voru 286 próf gerð á leikmönnum sem þurftu að skila bæði þvagprufum og blóðprufum eftir leik.
Tveir leikmenn úr hverju liði voru handahófskennt valdir eftir hvern leik í lyfjapróf. Enginn reyndist hafa neitt ólöglegt í sínum líkama. UEFA segir þessa niðurstöðu mikið gleðiefni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






