Íþróttir
|
EM í fótbolta 2008
| mbl
| 3.7.2008
| 12:02
Domenech áfram með Frakka
Franska knattspyrnusambandið hefur gefið frá sér tilkynningu um að Raymond Domenech muni halda áfram sem knattspyrnustjóri Frakklands þrátt fyrir lélegt gengi á Evrópumótinu í sumar.
„Nýr samningur hefur verið gerður við hann. Sá gildir til ársins 2010. Allt hefur verið endurskoðað og Domenech mun vinna eftir því,“ sagði Jean-Pierre Escalettes hjá franska knattspyrnusambandinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






