Hoddle: Owen betri valkostur en Tévez

Glenn Hoddle.

Glenn Hoddle. Reuters

Glenn Hoddle fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga telur að Michael Owen verði betri valkostur í sóknarleik Manchester United heldur en Carlos Tévez en Owen gekk öllum á óvart í raðir Englandsmeistaranna í fyrradag.

,,Sá fótbolti sem United spilar mun henta Owen mjög vel. Yfirráðin í leikjunum og fullt af marktækifærum. Þetta getur ekki verið betra fyrir hann,“ segir Hoddle í viðtali við enska blaðið Sunday Mirror.

,,Hjá United þá verður hann ekki í brennideplinum. Hann verður með mönnum eins og Rooney, Berbatov og Valencia í kringum sig. Þessir menn geta gert út um leiki og ég held að Owen muni dafna vel hjá Manchester United.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is