Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 27.8.2009
| 15:49
EM: Látum hendur standa framúr ermum
Eftir Víði Sigurðsson í Lahti, vs@mbl.isÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu var rétt í þessu að koma á Lahti leikvanginn og ganga þar til búningsherbergja. Það fór mun meira fyrir því en norska liðinu sem mætti á staðinn um það bil fimm mínútum áður.
Norska liðið gekk hægt og hljótt í gegnum salarkynnin sem hýsa einnig aðstöðu fréttamanna og þaðan til sinna klefa. Þegar íslenska liðið nálgaðist heyrðust hinsvegar kunnuglegir tónar. Þar glumdi gamli handboltaslagarinn "Við gerum okkar besta" úr tilheyrandi tóngræjum og það fór því ekkert á milli mála hverjar voru þarna á ferð.
Stemmningin í hópnum er augljóslega góð og á eftir kemur í ljós hvort hún nái alla leið inná völlinn. Leikur Íslands og Noregs hefst klukkan 17 og er að vanda fylgst með gangi mála hér á mbl.is.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






