EM: Okkur vantaði herslumuninn
Eftir Víði Sigurðsson í Lahti, vs@mbl.is„Þetta er svo svekkjandi, öll þessi vinna að baki hjá öllum í liðinu og öllum sem hafa starfað í kringum það, og að okkur skyldi ekki takast að vinna þessi lið," sagð Erna Björk Sigurðardóttir, varnarmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, við mbl.is eftir ósigurinn gegn Norðmönnum, 0:1, í Lahti í kvöld.
Ísland er þar með úr leik í úrslitakeppni Evrópumótsins, sigur gegn þýsku heimsmeisturunum á sunnudaginn myndi engu breyta um það.
„Það vantaði bara herslumuninn til að nýta færin. Mér fannst við eiga seinni hálfleikinn, þá fórum við í „hápressu" og ég held að hún virki bara betur fyrir okkur en „lágpressan" sem við beittum í fyrri hálfleik. Við höfðum heldur engu að tapa, urðum að sækja, en þetta var stöngin út en ekki stöngin inn í kvöld.
En þetta er okkar fyrsta stórmót og við tökum með okkur mikla reynslu héðan. Við erum hinsvegar alls ekki hættar, það er einn leikur eftir og þar höfum við engu að tapa gegn Þjóðverjum og getum notið þess að spila gegn þeim," sagði Erna.






