EM: Það hefði verið ljúft að skora

Hólmfríður Magnúsdóttir sækir að marki Noregs. stækka

Hólmfríður Magnúsdóttir sækir að marki Noregs. mbl.is/Golli

„Ég hefði átt að senda boltann á milli fótanna á henni í staðinn fyrir að reyna að skrúfa boltann framhjá henni. Boltinn straukst við stöngina og það hefði verið sætt að sjá hann inni," sagði Hólmfríður Magnúsdóttir landsliðskona í knattspyrnu um dauðafærið sem hún fékk eftir 12 sekúndna leik gegn Norðmönnum í Lahti í kvöld.

Hún slapp þá ein í gegnum vörn Noregs eftir frábæra stungusendingu Dóru Stefánsdóttur og renndi boltanum hárfínt framhjá markverðinum en líka framhjá markstönginni hægra megin.

„Ég átti bara að gera betur, það hefði breytt miklu og verið mjög ljúft að skora þarna," sagði Hólmfríður og var fyrst og fremst ánægð með seinni hálfleikinn.

„Þá pressuðum við þær framarlega og við það opnuðust fleiri sóknarfæri fyrir okkur. Við náðum að ógna þeim miklu meira. Þetta var hörkuleikur, það sáu allir að leikurinn gat farið á hvorn veginn sem var, við áttum að geta lagt þetta lið að velli eða að minnsta kosti náð jafntefli. Mér finnst tapið ekki sanngjarnt.

Það er fúlt að tapa tveimur leikjum hérna á EM, auðvitað gat það gerst en það er svekkjandi að tapa leik sem við eigum fullt erindi í. Það er erfiðara en að tapa leik þar sem hitt liðið er mikið betra. Nú er einn leikur eftir, við reynum að spila okkar besta leik gegn heimsmeisturunum á sunnudaginn og sjáum til hvað það gefur okkur," sagði Hólmfríður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is