EM: Vorum betri núna eins og síðast

Sara Björk Gunnarsdóttir (11) gengur hér af velli ásamt Eddu Garðarsdóttur, Guðrúnu Sóley Gunnarsdóttur og ... stækka

Sara Björk Gunnarsdóttir (11) gengur hér af velli ásamt Eddu Garðarsdóttur, Guðrúnu Sóley Gunnarsdóttur og Rakel Logadóttur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

mbl.is Eftir Víði Sigurðsson í Lahti, vs@mbl.is

„Það var mjög svekkjandi að fá ekki stig úr þessum leik og kannski hefðum við átt að byrja að pressa þær framarlega fyrr því það gekk vel í seinni hálfleik,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaðurinn ungi í íslenska liðinu, við mbl.is eftir leikinn við Noreg.

„Við fórum sáttar af velli því við lögðum okkur 100 prósent fram, gerðum allt sem við gátum, en auðvitað er maður aldrei sáttur við að fá ekki stig. Mér fannst norska liðið svipað og þegar við unnum þær á Algarve í mars. Við vorum betri núna eins og þá, en heppnin var ekki á okkar bandi í kvöld. Við gerðum allt sem við gátum, fækkuðum varnarmönnunum niður í þrjá, en það dugði ekki til.

Það er ömurlegt að vera ekki með stig eftir tvo leiki en við erum komnar með mikla reynslu sem nýtist okkur á næsta stórmóti. Það er mikil upplifun að taka þátt í svona móti og fyrir mig eru það hrein forréttindi að vera hérna með þessum stelpum. Það er eiginlega ótrúlegt. Nú þurfum við bara að taka þær þýsku og pakka þeim saman!,“ sagði hin 18 ára gamla Sara Björk sem er í hópi yngstu leikmannanna á EM en hefur verið í byrjunarliði í báðum leikjum Íslands og hefur þegar leikið 21 A-landsleik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is