Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 28.8.2009
| 18:59
EM: Englendingar lögðu Rússa
Englendingar og Rússar áttust við á Evrópumeistaramóti kvenna í C-riðli. England skoraði þrjú mörk eftir að hafa lent 2:0 undir eftir aðeins 22 mínútur. Englendingar svöruðu með þremur mörkum í röð á 24., 32. og 44. mínútu. Lokatölur, 3:2.
Kelly Smith kom Englendingum í 3:2 með ótrúlegu marki af um 45 metra færi. Hún tók við markspyrnu markvarðar Rússa við miðlínuna, og þrumaði síðan á markið.
Svíar eru efstir í riðlinum með 6 stig eftir 2 leiki, Ítalía og Englendingar eru með 3 stig og Rússar eru án stiga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






