EM: Ísland á heima á EM
Eftir Víði Sigurðsson í Lahti, vs@mbl.is
Dauðafæri eftir 12 sekúndur, stangarskot eftir 12 mínútur. En samt er niðurstaðan sú að Ísland tapaði fyrir Noregi, 0:1, í Lahti í gærkvöld og er úr leik í þessari fyrstu úrslitakeppni Evrópumóts sem íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í.
Vonbrigði? Já, vissulega. Liðið gat gert miklu betur gegn Frökkum á mánudag, og það gat fengið miklu meira en ekki neitt út úr leiknum gegn Norðmönnum í gærkvöld. En það sem upp úr stendur er að íslenska landsliðið sýndi í leiknum við Noreg að það á heima í hópi tólf bestu liða í Evrópu. Það á heima í úrslitakeppni Evrópumótsins. Um það þarf ekki að efast.
Munurinn á liðunum tveimur í gærkvöld var lítill sem enginn. Norðmenn, með alla sína hefð og reynslu, eru einfaldlega í nákvæmlega sama styrkleikaflokki og nýliðarnir Íslendingar.
Ítarlega umfjöllun um leikinn, myndir og viðtöl við leikmenn er að finna í Morgunblaðinu í dag.






