Íþróttir
|
EM í fótbolta
| Morgunblaðið
| 28.8.2009
| 7:24
EM: „Mikil vonbrigði að vera úr leik“
Edda Garðarsdóttir, Ólína VIðarsdótir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Þóra B. Helgadóttir og Katrín Jónsdóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Eftir Víði Sigurðsson í Lahti, vs@mbl.is
„Það eru mikil vonbrigði að vera úr leik í þessari keppni, við ætluðum okkur áfram. Og að tapa á svona marki, að þessi sem skoraði náði einhverri „Olgu Færseth-hreyfingu“, algjörlega óvart, er fúlt. Það hefði verið virkilega sætt að ná einhverju út úr þessum leik en svona er þetta,“ sagði Edda Garðarsdóttir miðjumaður landsliðsins við Morgunblaðið eftir tapið fyrir Norðmönnum í Lahti.
Ítarlega umfjöllun um leikinn, myndir og viðtöl er að finna í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






