Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 28.8.2009
| 16:46
EM: Svíar komnir áfram
Svíar lögðu Ítali, 2:0, í úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í knattspyrnu í Finnlandi í dag. Lotta Schelin og Kosovare Asllani skoruðu mörk Svía á fyrstu 20 mínútum leiksins.
Með sigrinum tryggðu Svíar sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar en þeir lögðu Rússa, 3:0, í fyrsta leik sínum en Ítalir skelltu Englendingum óvænt, 2:1.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






