Ég held að þær séu rétt að byrja

Það var létt yfir íslenska kvennalandsliðinu á æfingunni í gær. stækka

Það var létt yfir íslenska kvennalandsliðinu á æfingunni í gær. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is
Vonbrigði. Það er orðið sem fyrst fellur af munni flestra viðmælenda minna hér í Finnlandi eftir að ljóst varð að íslenska kvennalandsliðið næði ekki markmiði sínu. „Stelpurnar okkar“ fara ekki í 8 liða úrslit Evrópumótsins eins og þær ætluðu sér. Þær fara heim eftir rimmuna við heims- og Evrópumeistarana frá Þýskalandi í Tampere á morgun. Eins og keppnin hér hefur þróast hefðu þær vel getað mætt gestgjöfunum, Finnum, í 8 liða úrslitum ef vel hefði gengið, og þá hefði verið fyrir hendi gullið tækifæri til að fara enn lengra.

Hversu miklum vonbrigðum ollu landsliðskonurnar? Þær sjálfar eru mjög sárar yfir því að hafa ekki gert betur og náð markmiðinu. Það er skiljanlegt, þessi hópur er gífurlega metnaðarfullur og leikmennirnir hafa skynjað í leikjum ársins að bilið á milli þeirra og bestu liða Evrópu og heimsins hefur minnkað verulega undanfarin tvö ár.

Pistill Víðis er í heild sinni á bls. 3 í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is