EM: Fleiri fá tækifæri gegn Þýskalandi

Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari og Sigurður Ragnar Eyjólfsson ræða málin á æfingu landsliðsins í Tampere. stækka

Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari og Sigurður Ragnar Eyjólfsson ræða málin á æfingu landsliðsins í Tampere. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is

„Það munu einhver ný andlit fá tækifæri gegn Þjóðverjum, hvort sem það verður í byrjunarliðinu eða með því að koma inná," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í Tampere í dag þar sem leikurinn gegn heims- og Evrópumeisturum Þýskalands á morgun var til umræðu.

Sigurður mun tilkynna byrjunarlið sitt um kvöldmatarleytið, að íslenskum tíma, en hann hefur teflt fram sama liði í tveimur fyrstu leikjunum á EM, með einni undantekningu. Dóra Stefánsdóttir kom inn fyrir Katrínu Ómarsdóttur í leiknum gegn Noregi.  Alls hafa 16 leikmenn komið við sögu í leikjunum tveimur en sex úr hópnum hafa ekki komið inná til þessa.

„Ég mun nota leikinn að einhverju leyti til að gefa leikmönnum tækifæri. Það eru bæði plúsar og mínusar við það að gera breytingar en við höfum notað að grunni til sama liðið í flestum leikjum á þessu ári og ég veit því nokkurn veginn hvað ég hef í höndunum. Til viðbótar eru 2-3 leikmenn í hópnum sem hafa lítið eða ekkert komið við sögu í þessari keppni en ég treysti fullkomlega til að byrja inná, og hafa verið nálægt því. Það getur vel verið að einhverjir þeirra fái tækifæri á morgun.

Við munum ekki breyta okkar leik stórvægilega frá leikjunum gegn Frakklandi og Noregi. Við spiluðum þá að mörgu leyti ágætlega og reynum að halda áfram á sömu braut. Við mætum ógnarsterku liði og leggjum áherslu á að spila góðan varnarleik og sækja hratt þegar færi gefast. Eins að nýta okkur föst leikatriði eins og kostur er.

Ef litið er á tölfræði þýska liðsins í stórmótum þá er hún eiginlega fáránlega góð. Við vitum að við verðum í hlutverki litla liðsins, en litlu liðin geta gert þeim stóru skráveifu, við höfum gert slíkt áður og höfum fulla trú á að okkur takist það í þessum leik."

Fróðlegt að koma framarlega á völlinn

Sigurður var spurður hvort hann myndi freista þess að pressa þýska liðið framarlega á vellinum en slíkt gaf góða raun í seinni hálfleiknum gegn Noregi á fimmtudaginn.

„Það getur vel verið að við grípum til  þess einhvern tíma í leiknum, ef færi gefast. Það  væri fróðlegt að koma framarlega á völlinn og sjá hvað það gæfi okkur gegn toppliði. Að hluta lítum við á þennan leik sem tækifæri til að læra meira um okkar lið og hvernig það höndlar að spila gegn einu besta liði heims. Úrslitin skipta auðvitað miklu máli en ég mun samt horfa meira á frammistöðu liðsins.

Við höfum ekki verið yfirspiluð ennþá, báðir leikirnir okkar voru frekar jafnir. Reynslan sem við höfum fengið útúr þessum leikjum er geysilega dýrmæt og mun koma okkur til góða næst þegar liðið kemst í úrslitakeppni."

Þurfum að bæta sendingar og sóknarleik

Sigurður var spurður á fundinum að því hvað þyrfti að gera til þess að koma liðinu lengra í framtíðinni og ná því takmarki að komast í 8-liða úrslit á stórmóti.

„Við þurfum að efla enn frekar okkar barna- og unglingastarf, fá fleiri stúlkur til að spila fótbolta, og það er þegar gott starf í gangi í þeim efnum heima á Íslandi. Okkar bestu leikmenn þurfa að taka enn frekari framförum. Margir þeirra spila í sterkum deildum í Svíþjóð og Noregi. Við þurfum að halda þeim þar og fjölga, og um leið styrkja enn frekar íslensku liðin.

Hvað liðið sem slíkt varðar þurfa leikmenn að bæta sendingagetuna og boltameðferðina, og við þurfum að bæta við sóknarleik okkar. Varnarleikurinn er þegar góður en við þurfum að efla sóknarleikinn á næstu tveimur árum," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is