EM: Holland áfram en Danir þurfa að bíða

Hollenska liðið hefur komið á óvart á EM. stækka

Hollenska liðið hefur komið á óvart á EM. mbl.is/Ómar

Hollendingar unnu í gærkvöld óvæntan sigur á Dönum, 2:1, í lokaumferð A-riðilsins í úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu í Finnlandi. Hollenska liðið er þar með komið í 8-liða úrslitin en Danir þurfa að bíða eftir því hvernig hinir riðlarnir enda til að vita sín örlög.

Sylvia Smit og Manon Melis komu hollenska liðinu í 2:0 í seinni hálfleik. Johanna Rasmussen minnkaði muninn fyrir Dani þegar 20 mínútur voru eftir og danska liðið gerði harða hríð að hollenska markinu eftir það en án árangurs.

Úkraína vann Finnland, 1:0, þar sem Lyudmyla Pekur skoraði sigurmarkið á 69. mínútu. Það hafði þó ekkert að segja, þegar var ljóst að Finnland myndi vinna A-riðilinn og lið Úkraínu væri á heimleið.

Finnland leikur í 8-liða úrslitum gegn liði sem verður í 3. sæti í annaðhvort B- eða C-riðli, en Holland mætir liðinu sem verður í 2. sæti í B-riðli, Noregi eða Frakklandi.

Holland og Ísland gerðu jafntefli, 1:1, í vináttuleik fyrr á árinu og virðast mjög áþekk að styrkleika og það sýnir kannski best stöðu íslenska liðsins hvaða möguleika það hefði átt, hefði það komist áfram í 8-liða úrslitin.

Danska liðið, sem flestir áttu von á að færi í undanúrslit mótsins hið minnsta, kemst aðeins áfram ef lið í 3. sæti í annaðhvort B- eða C-riðli verður með lakari útkomu. Það gæti staðið tæpt en Danir luku keppni með 3 stig og töpuðu bæði fyrir Finnum og Hollendingum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is