EM: Mér fannst vera brotið á mér
Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is„Mér fannst ég vera með boltann og mér fannst vera brotið á mér, en ég þarf að sjá þetta betur," sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir landsliðsmarkvörður við mbl.is eftir tapið gegn Þýskalandi, 0:1, á EM í Tampere í dag.
Inka Grings skoraði sigurmark Þjóðverja á 50. mínútu þegar hún náði að sópa boltanum í netið eftir fyrirgjöf, en Guðbjörg hafði hendur á boltanum um leið.
„Ég er svekkt yfir því að hafa tapað á þessu marki. Ég hélt á boltanum og átta mig ekki alveg á því hvernig hann fór í markið. Kannski hefði ég átt að liggja eftir og væla eins og Ítalirnir, þá hefði ég kannski fengið aukaspyrnu," sagði Guðbjörg og glotti.
Hún kom í stað Þóru B. Helgadóttur eftir að hafa setið á varamannabekknum í fyrstu tveimur leikjunum. „Það var mjög gaman að fá að spila og mér finnst að ég hafi átt það skilið. Ég var vel undirbúin fyrir þetta, var ekkert óstyrk og þetta var eins og hver annar dagur á vellinum. Ég hafði vissulega talsvert að gera en varnarleikur liðsins var svo góður að þetta voru ekki mörg opin færi sem Þjóðverjarnir fengu. Mér fannst þetta aðallega vera skyldumarkvörslur hjá mér."
Ég kom löngutöng í boltann
Þjóðverjar voru næst því að skora snemma leiks þegar Martina Müller skaut í þverslána og niður en Guðbjörg kom í veg fyrir að hann færi í netið, náði til boltans og breytti stefnu hans. „Ég kom löngutöng í boltann og varði með henni, annars hefði þetta verið þversláin inn. Það var líklega besta markvarslan mín í leiknum. Sú þýska sá greinilega að ég var framarlega í markinu en þetta reddaðist."
Varnarleikurinn var fyrst og fremst góður, við fengum ekki margar sóknir gegn þessu gríðarlega sterka liði, en við lærum mikið af þessum leik. Það var svekkjandi að lenda í svona sterkum riðli, ég er viss um að við hefðum komist áfram ef við hefðum lent í öðrum hvorum hinna riðlanna í keppninni," sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir sem spilaði sinn 14. A-landsleik.






