Íþróttir
|
EM í fótbolta
| mbl
| 30.8.2009
| 21:38
EM: Minntist fyrrum liðsfélaga
Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.isÓlína G. Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, mætti til leiks gegn Þýskalandi á EM í Finnlandi í dag með merki af banana á enninu. Með því minntist hún fyrrum liðsfélaga síns, Andreu Rowe, sem lék hér á landi í fjögur ár, með Grindavík og Fjölni, en lést fyrr í þessum mánuði.
Andrea, sem var 28 ára gömul, fannst látin í íbúð í Flórída fyrir fjórum vikum. Hún var leikmaður með Grindavík í úrvalsdeildinni 2001 og 2002 en fór síðan til Fjölnis og lék þar í 1. deild 2003 og úrvalsdeild 2004.
Andrea mun hafa haft fyrir sið að leika með merki af banana á enninu í leikjum og Ólína, sem lék með henni í Grindavík, minntist hennar því á þennan hátt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






