EM: Skiptir sköpum að halda hreinu

Dóra María Lárusdóttir snýr á Camillu Huse í leiknum gegn Noregi á fimmtudag. stækka

Dóra María Lárusdóttir snýr á Camillu Huse í leiknum gegn Noregi á fimmtudag. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Víði Sigurðsson í Tampere, vs@mbl.is

„Við erum fullar tilhlökkunar og okkur langar mikið til að stríða þýska liðinu sem er búið að vinna sína leiki örugglega," sagði Dóra María Lárusdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, við mbl.is um viðureignina gegn Evrópu- og heimsmeisturum Þýskalands sem hefst í Tampere klukkan 13 í dag.

„Þær þýsku hafa farið illa með þau lið sem við höfum tapað fyrir en við ætlum ekkert öðruvísi í leikinn gegn þeim en í hina leikina - við ætlum bara að vinna. Þá skiptir sköpum að halda markinu hreinu eins lengi og við getum, við verðum að vera þéttar og fastar fyrir. Síðan verðum við að nýta þau marktækifæri sem gefast. Við náum kannski 2-3 hættulegum sóknum og verðum síðan að nýta vel föstu leikatriðin. Annars er þetta eins og fyrir alla leiki, þetta er bara næsta verkefni," sagði Dóra María.

Hún kvaðst vonsvikin með niðurstöðuna í fyrstu tveimur leikjunum eins og allir samherjar hennar. „Já, við settum markið hátt fyrir þessa keppni og höfðum alltaf trú á því að við kæmumst áfram. Líka allan tímann í leiknum gegn Noregi, ég trúði því þangað til leikurinn var flautaður af að við myndum skora tvö mörk á lokamínútunum og sigra. Ég var enn að spila til sigurs þegar ein mínúta var eftir, var ekki bara að hugsa um að jafna metin.

Það sem okkur vantar enn er að kunna betur að spila á móti þessum sterku liðum. Við erum stundum of fljótar á okkur og örvæntingarfullar í okkar aðgerðum í stað þess að róa leik okkar aðeins og spila af yfirvegun," sagði Dóra María Lárusdóttir sem lék sinn 50. A-landsleik gegn Noregi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl


finnur.is